
STARFSFÓLK

Jónína Guðmundsdóttir
Lögmaður
Sími: 899-1777
Jónína hefur lokið BA og ML prófi í lögfræði frá Lagadeild Háskólans í Reykjavíku og úrskrifaðist hún árið 2009. Jónína öðlaðist málflutningsréttindi fyrir hérðasdómi árið 2011 og fyrir Landsrétti 2021.
Jónína býr yfir mikilli reynslu af hinum ýmsu sviðum lögfræðinnar eftir að hafa starfað sem fulltrúi hjá sýslumanni, lögreglustjóra og lögmaður. Þá sinnir hún einnig stundarkennslu við lagadeild Háskólans á Akureyri í fullnusturéttarfari og samningarétti.
Helstu málaflokkar sem Jónína hefur komið að eru umgengis-, forsjár- og skilnaðarmál, faðernismál, dánarbú, sakamál bæði réttargæslu fyrir brotaþola og verjandastörf, barnaverndarmál, slysamál, mál vegna vannræsklu og læknamistana sem og stjórnsýslu- og sveitarstjórnarmál.
Auk þess veitir Jónína alla almenna lögfræðiþjónustu ásamt því að sinna málflutningi fyrir héraðsdóm og Landsréttii og halda fyrirlestra fyrir einstaklinga, skóla og stofnanir.

Margrét Birgitta
Davíðsdóttir
Lögfræðingur
Sími: 868-1947
Margrét hefur lokið BA og ML prófi í lögfræði frá Lagadeild Háskólans í Reykjavíku og úrskrifaðist hún árið 2020.
Margrét er m.a. sérhæfð á sviði mannréttinda, sakamála, vinnuréttar og persónuverndar. Hún hefur starfað undanfarin ár samhliða námi í fangelsinu á Litla-Hrauni og Sogni og hefur því einnig mikla þekkingu af fullnustukerfinu. Samhliða starfi hjá Velferð Lögfræðiþjónustu vinnur Margrét sem lögfræðingur hjá Félagsþjónustu Rangárvalla- og Vestur Skaftafellssýslu.
Margrét veitir alla almenna lögfræðiþjónustu.